26.10.2009 | 11:45
Heima - í "hvíld fyrir vakt"
Jæja, kominn tími til að skipta um fyrirsögn hér... Kannski fyrir löngu, ég veit 
Ég er að fara á næturvakt (fyrstu næturvaktina á barna...) og það hefur einn kost - ég fékk að sofa út í dag! Mikið var það gott. Ég var svo þreytt í og eftir síðustu viku að ég var héld ég að verða búin að gleyma nafninu mínu... Var ss. að vinna helgina þar á undan svo törnin var orðin ansi löng, og tónleikahelgi þar á undan.
En helstu afrek þessarar helgar voru að kaupa borðstofustóla og skrá mig í Birkebeinerennet! Vei :) Það þýðir tvennt... Ég verð endilega að fara að halda matarboð (einhver sem vill koma?) og ég þarf að fara að verða mjööög dugleg að æfa. 5 mánuðir til stefnu!


Athugasemdir
Halló, til hamingju með nýju stólana. Ég þigg matarboð hvenær sem er
ÞSS (IP-tala skráð) 26.10.2009 kl. 17:52
Þetta eru góðir stólar svo ég kem!
gh., 28.10.2009 kl. 18:46
Þá er best að ég bjóði ykkur bara fljótlega :)
Hrefna Katrín Guðmundsdóttir, 29.10.2009 kl. 09:23
Ég vil koma í mat :) Ég skal meira bjóða um betur og leggja fram félagsskap minn í leikfiminni líka!
Ólöf (IP-tala skráð) 29.10.2009 kl. 12:04
Mér líst vel á matarboð, bara ekki gras... ;)
Nonni (IP-tala skráð) 29.10.2009 kl. 13:03
Ég set ykkur á listann :)
Hrefna Katrín Guðmundsdóttir, 29.10.2009 kl. 15:56
Hæ, hó. Takk fyrir matinn í gær og til hamingju með nýja sófann og nýja spegilinn og nýju hillurnar.
ÞSS (IP-tala skráð) 2.11.2009 kl. 21:37
Takk takk og sömuleiðis :) Við stóðum okkur barasta ansi vel um helgina!
Hrefna Katrín Guðmundsdóttir, 3.11.2009 kl. 18:15
Mjög vel, ég get staðfest það!
Nonni (IP-tala skráð) 5.11.2009 kl. 00:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.