...þegar eru minna en tvær viku til stefnu! Hjálp...
Ég er samt enn í Pollýönnuleik og reyni að trúa því að ég geti þetta... Hef þó allavega komist aðeins á skíði núna nokkrar helgar í röð (reyndar ekki í spori síðustu tvær svo það hafa nú ekki orðið miklar tækniæfingar, en allavega 2-3 klst í snjónum). Og hóstinn er aðeins að byrja að lagast (eftir viku með sterapúst) þó ég hafi nú verið ansi viðkvæm á skíðunum í gær. Þetta verður allavega mikið ævintýri, það er öruggt!
Sunnudagur 28. febrúar - Skíði. Við hyttubúarnir (ég, Sandra, mamma og pabbi) fórum í Heiðmörk í æðislegu veðri, en aðeins minna æðislegu spori. Semsagt fóttroðið og svona í restina fóru aðeins of margir skór um það en aðeins of fá skíði. En hluta þess fengum við að hafa í friði. Gengum í 2 klst og 45 mín en bara 17 km. Það eru samt 17!
Laugardagur 6. mars - Ræktin. Hljóp ca 2 km og varð þá að hætta og hvíla mig því ég hóstaði svo mikið, hjólaði 20 mín (7.45 km) og réri í 10 mín. Svo kviðæfingar og bakæfingar.
Og svo tvær langar (17-18 klst) og mjög bissí vaktir þar sem ekki var mikið um pásur og einn fyrirlestur... Ein kóræfing og svo fundur í Rathlaupsfélaginu Heklu, það var skemmtilegt og ég hlakka til þegar farið verður að hlaupa í apríl-maí. Ætla samt að fara fullt á skíði áður!
Og hér með er ég farin í ræktina....
Ég kemst víst ekkert í betra form þó að þið komist ekki að því hvað ég æfi lítið!
Náði bara tveimur æfingum í síðustu viku. En reyndar þremur kóræfingum, samtals 11 klst! Verst að ein þeirra er á badmintontíma... Ég, Hanna og Sigrún vorum beðnar að bætast í Kór Áskirkju fyrir næstu tónleika hjá þeim (einsöngvarar úr kórnum svo það vantaði í kórinn í staðinn) og þau æfa á þriðjudögum, einmitt þegar ég á að vera í badmintoni með læknaskvísunum! Þannig að ég þarf að skrópa í heilan mánuð :(
Annars er ég eiginlega duglegust að æfa kviðvöðvana núna... Í formi hóstakasta! Fékk kvef (örugglega RS) alveg ókeypis á bráðamóttökunni og með því að blanda því við þennan smá astma sem ég er með tekst mér að ná upp alveg ótrúlega smart hósta... Var bent á það af yfirlækninum á vaktinni í gær að ef ég færi ekki að taka sterapúst núna strax þá kæmist ég ekki í gegnum Birken. Hressandi. Svo ég sótti slíkt í morgun og byrjaði að borða það.
En já, þá eru það æfingar síðustu viku:
Sunnudagur 21. febrúar - Skíði :) Gekk 17 km á Seljalandsdal. Dejligt! Var reyndar ansi þreytt eftir æfinguna daginn áður en ég trúi því að það muni um hvern km.
Föstudagur 26. febrúar - Ræktin. Hljóp 6 km á bretti og réri 12 mínútur í róðrarvél.
Og svo vona ég bara að ég geti nýtt snjóinn hér á suðvesturhorninu svolítið meira áður en hann fer aftur... Ætla að reyna á morgun og krossa alla fingur og tær fyrir því að hann haldist fram yfir næstu helgi!
Jæja, komið að skýrslunni fyrir síðustu viku - þýðir ekkert að svindla á þessu. Var samt ansi þreytt eftir vikuna á undan (já ég veit, væli væl) og þá meina ég vinnuna en ekki æfingarnar!
Mánudagur 15. febrúar - hljóp 5 km á bretti, aðeins hraðar en síðast. Mátti svo ekki vera að því að gera meira því ég þurfti að flýta mér í bollur hjá m og p ;) Maður verður að forgangsraða!
Laugardagur 20. febrúar - komin vestur í snjóinn! Gekk 26 km og var samtals 2 klst og 50 mín. Var svosem ekkert að flýta mér sérstaklega, aðallega safna km. Var orðin ansi þreytt eftir 20, vona að það sé aðallega vegna of mikillar vinnu dagana á undan...
Annars var mjög gott að komast vestur :) Þar er nógur snjór og var fínt færi og veður um helgina. Reyndar alltaf él inn á milli en þau voru ekki löng. Ótrúlega falleg jólakortasnjókoma á laugardagskvöldið! Og auðvitað gott að koma til ömmu og afa :)
Það var bikarmót í gangi á Seljalandsdal, keppt báða dagana (og reyndar á föstudagskvöldinu líka en ég fór ekki uppeftir þá). Nokkuð gaman að sjá - sérstaklega krakkana, þau eru sum rosalega góð. Væri til í að hafa verið svona góð þegar ég var krakki/unglingur, vildi að ég hefði æft skíðagöngu þá! Svo var líka bara fullt af fólki í brautunum, allir glaðir yfir snjónum og nota tækifærið til að æfa. Og sem betur fer var snjórinn líka nýr (en ekki grjótharður og gamall eins og á Akureyri í janúar) því að ég datt einu sinni mjög glæsilega - brunkapparnir í sjónvarpinu hefðu bara verið stoltir af byltunni held ég...!
...þegar eru fimm vikur í Birken!
Hef sem betur fer verið duglegri í þessari viku en síðustu og vona að ég nái að gera jafn mikið eða meira flestar vikur fram að göngu. Enn er enginn snjór, svo ég lýsi eftir honum! Á frí um næstu helgi og er að velta fyrir mér að skella mér í æfingaferð eitthvert þangað sem er snjór, er ekki búin að ákveða hvert samt... Hugmyndir? Ferðafélagar?
Sunnudagur 7. feb: Ræktin. Hljóp 5 km og réri í róðrarvél í 10 mín. Kvið- og bakæfingar.
Þriðjudagur 9. feb: Badminton
Fimmtudagur 11. feb: Ræktin. Hljóp 5 km - rétt fyrir lokun svo það urðu engar æfingar...
Föstudagur 12. feb: Ræktin. 45 mín hjólatími - það er nú meira púlið! Best að reyna að mæta oftar...
Efast um að ég geri mikið í dag. Var að vakna eftir vakt og er að fara á næstu... Hefur verið brjálað að gera í vinnunni þessa viku, veikindi hjá unglæknum svo við sem höfum verið í vinnu höfum tekið vel á því. Er núna búin að vinna 59 klst síðan á mánudagsmorgun og á eftir 24 klst áður en næsti mánudagsmorgunn kemur...
Eða kannski ekki bara leti. Líka tímaskortur og snjóleysi. En við því tvennu get ég ekkert gert, það er fáránlega illa mannað á spítalanum og því fáránlega mikið að gera og já, það snjóar ekki - þó við skíðamenn hér sunnan heiða dönsum snjódans hátt og í hljóði... Og það eru 39 dagar í Birken. Þess vegna ætla ég að athuga hvort þið (segi þið, því að mér sýnist að enn lesi einhverjir hér af og til þó lítill dugnaður sé í skrifum) nennið ekki að hjálpa mér smá... Ég ætla að skrifa vikulegt yfirlit yfir æfingar og þigg gjarnan hvatningu, skammir, hrós eftir því sem við á...
Ok... Fyrstu vikuna í febrúar var ég ekki dugleg. Gerði nánast ekki neitt (nema vinna, vera illt í hendinni (sinaskeiðabólga eftir Skíðastaðagönguna og hekl yfir handboltanum á eftir) og syngja á tónleikum). En ég ætla samt að byrja í byrjun mánaðarins.
31. janúar: Göngutúrar, 3 stk, samtals rúmlega 2 klst.
5. febrúar: Gekk upp í Fella- og Hólakirkju á kóræfingu, rösklega. 1 klst 20 mín.
Vandræðalegt að byrja þetta svona, en þessi vika virðist ætla að verða betri (vona að ég þurfi ekki að éta það ofan í mig).
Viðbót: Ok. Var að muna að ég gekk líka talsvert á sunnudeginum á undan, og hann telst með þó það hafi verið janúar. Set það inn líka, þá er þetta nú örlítið skárra.
Þá er ég komin heim eftir fyrsta skíðamót vetrarins. Það var Skíðastaðagangan á Akureyri sem var haldin á laugardaginn. Gaman að komast á skíði! Við komum norður á föstudagskvöldið, fjórir Ullungar saman (ok - þrír Ullungar og Ísfirðingur, best að hafa þetta rétt fyrir Söndru!), og kíktum þá aðeins í fjallið, svona rétt til að sjá snjóinn (sem var glerharður og stórhættulegur...) en heimamenn slökktu á okkur ljósin um leið og við komum uppeftir svo við gerðum ekkert meira en það. Ég var nú reyndar bara mjög fegin því, var ansi þreytt eftir 12 daga vinnuviku... En vöknuðum svo snemma á laugardaginn og höfðum okkur til fyrir gönguna og fórum upp eftir til að skrá okkur og undirbúa skíðin. Klísturfæri... Hef ég skrifað áður að mér er illa við klístur? En  jæja, það tókst nú svosem að koma því undir (með smá aðstoð Ak-þjálfara sem var eldsnöggur að koma skaraklístrinu undir svo ég þurfti bara að setja multigrade og fjólubláan...). Fraus reyndar talsvert undir til að byrja með en það gerðist hjá mörgum eða flestum, og lagaðist þegar leið á - kannski vegna þess að ég plægði talsvert undan í bröttum manndrápsskarabrekkum (sérstaklega slæmt í seinni hringnum þegar búið var að plægja allan lausa snjóinn ofan af og maður var líka orðin pínkuþreyttur í fótunum). En allavega - í mark komst ég eftir 24 km (gps-ið mitt sagði reyndar 22 en þetta er skráð 24...). Svo var kökuhlaðborð á eftir og svo smápása áður en við fórum í pitsuát og handboltagláp. Fórum svo aftur á skíði í gær, þá var nú reyndar ekki mikil orka eftir og harðsperrur á ýmsum stöðum, svo það varð nú bara einn hringur á hægagangi. En það var bara fínt, og ég fór með bakpokann til að æfa mig aðeins fyrir Birken. Er annars farin að hlakka mjög mikið til Birken - og líka stressast pínu því að það verður svo erfitt....
Og nú bara verður að fara að snjóa hér fyrir sunnan! Nú er ég búin að fara sjö sinnum á skíði í vetur og það er EKKI nóg æfing...
Og takk fyrir þau gömlu :) Ég vona að nýja árið verði spennandi og skemmtilegt, vona að það muni ganga vel í vinnunni og að ég drukkni ekki alveg í vöktum, vona að verði nógur skíðasnjór og tími til að æfa vel fyrir aðalgöngurnar, vona að verði tími fyrir alls kyns grín, ferðalög og skemmtilegheit og síðast en ekki síst að allt góða fólkið í kringum mig verði hraust og glatt.
Ég vann og vann og vann þangað til að morgni þriðja í jólum en fór þá vestur á Ísó með fjölskyldunni, í afmælis- og áramótaferð. Aðal tilgangurinn var 90 ára afmæli afa (Til hamingju aftur!) og auka tilgangar að komast á skíði á dalnum góða í frábæru veðri og fagna áramótum í faðmi fjalla blárra (sem sjá til þess að hvellurinn af hverri bombu nýtist vel...). Þetta tókst allt saman ljómandi vel. Við m og p náðum þremur góðum skíðatúrum í frábæru veðri og spori, sérstaklega seinni tvo dagana þegar stóri troðarinn var mættur á svæðið. Afi kom svo með okkur á Gamlársdag :) Á Gamlársdag fór ég líka í Núp og keypti ný skíði handa mér í jólagjöf... Það er ekki nóg að eiga bara algjör grjótskíði og svo spari-áburðarskíði, maður þarf eiginlega að eiga rifflur líka þegar Bláfjöllin eru næsta skíðasvæði, maður veit aldrei alveg hvar maður hefur þau upp á snjó og færi. Og nú skiptir líka svo miklu máli að ég komist sem oftast á skíði til að æfa fyrir göngurnar í vetur. Styttist í þá fyrstu á Akureyri og styttist líka mjög í Birken!
En við keyrðum svo heim á Nýársdag, í æðislegu veðri og með nokkrum nauðsynlegum ljósmyndastoppum... Og í dag fór ég í ljómandi skemmtilega og vel heppnaða brúðkaupsveislu hjá Tuma og Mary Frances. Þar var borðað, hlegið og dansað. Takk fyrir mig :)
Hver veit hvar myndin er tekin?
Úff... En það er allavega kominn smá snjór svo nú er bara að vona að hann endist og að það bæti í svo það verði gott skíðafæri og að ég fái einhvern tíma til að æfa! Æfingadagbókin lítur nefnilega alls ekki nógu vel út... En ég ætla í ræktina í kvöld!
Setti inn link á gönguna og niðurtalningu svona til að stressa mig...
Sá á Birken síðunni áðan að það er búið að fylla kvótann! Það þýðir að tæplega einum og hálfum mánuði eftir að skráning hófst eru 15.000 manns búnir að skrá sig! 15.000 manns! Úff... Eins gott að maður týni ekki skíðunum sínum eða brjóti stafina eða bara troðist undir í látunum... Og eins gott að maður fari að komast almennilega í gang með æfingarnar svo maður verði ekki númer 15.000 í mark, mér þætti það svona heldur verra (þó auðvitað sé aðalmálið að komast alla leið án þess að slasa sig) Jæks...
Annars held ég að hnéð mitt sé að hugsa um að fara að ljúka veikindaleyfinu sínu (7, 9, 13), því ég hef getað hlaupið í 30 mín tvisvar sinnum núna (og heldur hraðar í seinna skiptið) án þess að finna eiginlega nokkuð til! Mér til afskaplega mikillar gleði  Og þá er bara að vooona að það haldist þannig, og teygja og nudda og gera allar kúnstir til að koma í veg fyrir að þetta gerist aftur, hvað sem það var.
Best að skrifa pínku....
En það er ekki af því að fyrirsögnin sé orðin úrellt, ég er á endalausum vöktum þessar vikurnar svo ég er til skiptis á vakt, í hvíld fyrir eða eftir... Ég á núna eftir eina í törninni og get ekki beðið eftir að fá helgarfrí, heila viku í dagvinnu og svo annað helgarfrí!!! Það er lengsta törnin mín án næturvakta í tvo mánuði... Og eina heila vinnuvikan!
Svo ég er orðin ansi þjálfuð í að sofa á undarlegum tímum. Á mánudaginn t.d. vaknaði ég þegar klukkan var að verða sex um kvöldið og það var orðið dimmara en þegar ég fór að sofa... En ég dreif mig í ræktina um kvöldið og er mjög ánægð með að hafa getað hlaupið í heilan hálftíma án þess að finna neitt að ráði til í hnénu :) Vona svo sannarlega að það bendi til þess að þetta hnjávesen sé að verða búið. Enda eins gott því það styttist í Birken og fleiri skemmtilegheit og þá er eins gott að vera dugleg að æfa. Verst að motivationin er svona aðeins mishá og svefnskammtur á sólarhring hefur eitthvað með það að gera... En líka bara almenn leti, hvað gerir maður til að losna við hana?
Er svo að fara á kóræfingu í kvöld. Styttist í jólatónleikana sem verða í Langholtskirkju 6. og 9. desember, kl. 20 bæði kvöldin. Boðið verður upp á súper einsöngvara, súper organista, kertaljós og jólakósíheit í bland við jólakraft og jólagleði og náttla hinn ágæta kór Söngsveitina Fílharmóníu :)
Jæja, best að kveikja á kertum og hekla smá í eilífðarteppinu mínu...
Jæja, kominn tími til að skipta um fyrirsögn hér... Kannski fyrir löngu, ég veit
Ég er að fara á næturvakt (fyrstu næturvaktina á barna...) og það hefur einn kost - ég fékk að sofa út í dag! Mikið var það gott. Ég var svo þreytt í og eftir síðustu viku að ég var héld ég að verða búin að gleyma nafninu mínu... Var ss. að vinna helgina þar á undan svo törnin var orðin ansi löng, og tónleikahelgi þar á undan.
En helstu afrek þessarar helgar voru að kaupa borðstofustóla og skrá mig í Birkebeinerennet! Vei :) Það þýðir tvennt... Ég verð endilega að fara að halda matarboð (einhver sem vill koma?) og ég þarf að fara að verða mjööög dugleg að æfa. 5 mánuðir til stefnu!
Eitt og annað er hægt að finna sér til dundurs á föstudagskvöldi. Til dæmis að föndra alveg hreint meinhollar hafrakökur undir fjölmenningarlegum tónum messunnar sem við ætlum að syngja um næstu helgi... Lúðalegt? Það getur vel verið, mér er alveg sama :)
Held meira að segja að kökurnar séu ætar - ætti kannski að spyrja Hérastubb bakara og vita hvort ég fái nokkuð svarið "Nei! Engum finnst góðar svona kökur!" Reyndar doldið þurrar, jafnvel ég fékk mér vatn í glas áður en ég kláraði prufukökuna, grunar að sumir þyrftu kaffibolla... Man ekki eftir að hafa gert svona áður. Kíkti í tvær matreiðslubækur og sporttímarit og blandaði svo bara alls konar dóti saman (haframjöl, fræ, hnetur, þurrkaðir ávextir, kakó (lítið og mjög hollt...), smjörlíki, egg og doldið síróp). Bakaði svo í fínu nýju muffinsformunum mínum. Getur nú alveg verið að ég reyni að þróa þetta eitthvað fyrir næstu tilraun, kannski með aðstoð fleiri matreiðslubóka og kannski google...
Og fjölmenningin. Löng kóræfing á morgun til að undirbúa tónleikana næstu helgi. Mjög spennandi tónleikar og verða örugglega skemmtilegir. Annars vegar Missa Criolla sem er þjóðleg, suður amerísk messa eftir argentískt tónskáld, Ariel Ramirez og hins vegar fjölmenningarmessa eftir sænsk-úrugvæskt tónskáld, Yamandú Pontvik. Ótrúlega skemmtilegt verk sem er einhvern vegin úr öllum áttum, ég man í fljótu bragði eftir sænskum, skoskum, afrískum og spænskum straumum. Skemmtilegur taktur og svokallað rythmaband (heilmikið slagverk, fiðla, gítar, kontrabassi og píanó)sem mun spila með okkur í Fílharmóníu og tveimur flottum einsöngvurum . Tónleikarnir verða í Seltjarnarneskirkju laugardag og sunnudag (10. og 11. okt) klukkan 16 og eins og venjulega er hægt að fá miða hjá mér! :)
Og já - eitt enn. Verð nú eiginlega að skrifa að ég er búin með kandidatsárið :) Svo þá er ég eiginlega orðin læknir! Eiginlega af því að ég er svo bissí í vinnunni að ég má ekki vera að því að sækja um lækningaleyfi... En ég hlýt að fá að skjótast með umsóknina í næstu viku!
Ég var að vakna - sem betur fer!
Það var skíðagöngumót í gangi. Ég var á Ísafirði / í Noregi og ca 2 tímar frá því að Holmenkollen gangan byrjaði (sem var samt eiginlega Birkebeiner, átti að fara yfir tvö fjöll og byrja í Rena, samt var ég ekki í Lillehammer, reyndar ekki við Holmenkollen heldur ef út í það er farið). Ég var við markið eitthvað að fylgjast með og alveg tilbúin, í gallanum og með skíðin á mér (held ég). Nú svo fara þessir fyrstu að koma í mark og verið að taka einhver viðtöl við þá og svona og allt í einu fatta ég að ég gleymdi að starta! Og er við öfugan enda... Svo ég ákveð að drífa mig af stað, í öfuga átt, en veit samt ekki alveg hvað ég eigi að gera, hvort ég eigi að fara hálfa leið og snúa svo við eða hvort ég eigi bara að fara alla leið til baka. Kveiki samt ekki á gps-inu og lít ekki á klukkuna svo ég get ekki vitað hvenær ég er hálfnuð og pæli í því hvernig ég eigi að komast aftur til baka ef ég geng alla leið að rásmarkinu. En hleyp allavega upp ca 15 km, á frábærum skíðum og eiginlega án þess að blása úr nös og er þá komin upp á fyrra fjallið í Birken. Þar mæti ég mömmu og pabba sem eru að koma úr réttri átt og þau skilja ekki heldur af hverju ég startaði ekki en við ákveðum að ég haldi eitthvað áfram í hina áttina. Þar tekur svo við snjólaus kafli og ég þarf að ganga með skíðin, í gegnum einhver vinnutjöld (svona eins og væri búið að tjalda yfir vegavinnu/stígavinnu) og þar mæti ég fleira fólki. Þarna er mjög erfitt að komast áfram, eins og sé mikill mótvindur inni í tjaldinu (ca 100 langt og mjótt tjald og oft lágt til lofts) og ég var að hugsa um hvað þetta væri óþolandi, búin að æfa og æfa, borga hátt þátttökugjald (enn hærra vegna gengis) og koma á staðinn og "gleyma" svo hreinlega bara að starta og vera í þokkabót öfugu megin! Þá fór ég að velta fyrir mér hvort það væri hugsanlegt að mig væri að dreyma... Þetta væri bara of fáránlegt. Svo ég ákvað að reyna að vakna og þá vaknaði ég!
Vona að göngur vetrarins eigi ekki eftir að líkjast þessu neitt...!
Verður maður ekki að skrifa annað slagið fyrst maður þykist vera með blogg? Ansi margir hættir bloggi eftir að feisbúkk varð allsráðandi samskiptaleið fólks... Hversu oft heyrir maður ekki eða segir sjálfur "já, ég sá það á feisbúkk". Feisbúkk veit allt, veit hverjir eru saman og hverjir ekki saman, hverjir eiga afmæli, hverjir eru búnir að gifta sig og hverjir að eignast börn, hverjum leiðist í vinnunni og hverjir eru að fara á djammið, og bara allt! Eða allavega næstum því allt ;)
Ég er búin að hugsa mikið um það í morgun hvort ég eigi að drífa mig út að hjóla... Kostir: Æfing - og jú, maður verður að æfa og það er skemmtilegt. Gallar: Rok og rigning (reyndar mun betra veður núna en var í morgun en nú hef ég ekki lengur tíma) og maraþonhlauparar á öllum stígunum og mig langaði að vera með... Ok, ég veit að maður á ekki að láta svoleiðis trufla sig lengi en það er samt pínku fúlt. Nú hlýtur þetta samt eitthvað að fara að lagast, ég á tíma hjá bæklunarlækni á fimmtudaginn og ætla að láta skoða þetta. Þarf líka að fá að vita hvað ég megi reyna mikið á hnéð og hvað ég geti gert til að koma í veg fyrir að þetta gerist aftur (eða á hinu hnénu). Og auðvitað frábært ef hægt væri að laga þetta bara med det samme en það er kannski ekki mjög líklegt...
En já, fór semsagt ekki út að hjóla. Lofa bót og betrun á morgun. Býst við að rölta eitthvað um bæinn í dag, látum það bara duga ;) Maður verður að skoða menninguna er það ekki? Er að fara að syngja við Söngskólann í Reykjavík með Fílharmóniu klukkan hálf þrjú en svo er ekki mikið meira planað í dag, en kveðjupartí í kvöld. Það eru allir að fara út aftur svo það virðist vera komið haust...  Einmitt kveðjumatur síðustu tvö kvöld og aftur annað kvöld!
Jæja, best að fara að gera eitthvað, þvo þvott, leika með IKEA dótið sem ég keypti í gær eða borða morgunmat eða eitthvað...